Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

DV fréttir af nauðgun í Eyjum

DV lokar á (þetta)  blogg sem er óþægiegt fyrir konur.  Er þetta frjáls fjölmiðill ???
mbl.is Maðurinn reyndist vera saklaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi íslenska fjölmiðlaeftirlitið verða frábrugðið því Tyrknesa

Tyrkneska sjónvarpstöðin Show TV var áminnt vegna þess að það sagði frá soldána sem var bæði drykkfeldur og kvensamur.   Þar sem hann var með valdameiri mönnum, þá er getur það skipt máli hvort hann hafi verið drukkinn í vinnunni, hvort einhvert pútnahús hafi hreðjatak á honum eins og ítölskum kollega, en það sem veldur mestri undrun er að soldáninn var upp á 16 öld.    Skyldi Íslenska fjölmiðlanefndin verða þröngsýn eða frjálslynd eða bara undir hælum stjórnvalda þegar hún tekur til starfa.    Þarf ekki að verja fjölmiðla- og táningafrelsið og umfram allt að styðja Wikileaks, því spilling, valdagræðgi og klíkuskapur þrífst a leynimakki.
mbl.is Drykkfelldur og kvensamur soldán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænska hóran

Það er alveg með ólíkindum hvað Svíar er fljótir að selja sálu sína hæstbjóðandi.  Nú eru þeir að slefa fyrir bandaríkjunum, og virða tjáninga- og fljölmiðlafrelsi einskis bara ef það hentar þeim.

Það hefur ekkert breyst hjá þeim síðan þeir buðu nasistum að ferðast í gegnum landið.

Leynimakk er forsenda lögbrota, svindl, svínarís og stríðsglæpa.  Því er besta ráðið til að hindra þetta að virða tjáninga og fjölmiðlafreslið og því þarf eð styðja Wikileaks.   

 Það er möguleiki á því með því að mæta á Austurvöll mánudaginn 17. jan.


mbl.is Segir Svía undirbúa framsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vitum þá hvar íhaldið stendur

Það er þá ljóst að Bjarni formaður sjálfstæðismanna telur það löglegt að hylma yfir brotum í hernaði og telur það lögbrot að upplýsa það.   Hann telur það líka löglegt þegar ráðamenn aðhafast ekkert þegar þjóðarskútunni er siglt í strand, þrátt fyrir að hafa þegið góð laun, útvegar vinum sínum góða vinnu og endalaust tala um ábyrgð stjórnmálamanna
mbl.is Bandaríkjamenn beita lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilaæxli heilbrigðiskerfisins

Nú á að leggja St. Jósefsspítalann í Hafnafirði undir Landspítalann.   Landspítalinn hefur aldrei þolað neina samkeppni eða samanburð.  Sem fyrrverandi starfsmaður Landakostspítalans, hef ég fylgst með því hvernig allar heilbrigðisstofnanir sem hafa annað hvort verið ódýrari, eða betri en Landspítalinn hafa grafið sína gröf með sínum gæðum.   Þegar Landakot var lagt niður, þá sagði ég að það væri bara tímaspurning hvenær Borgaspítalinn yrði settur undir Landspítalann og gekk það alveg furðuhratt, allt í nafni hagræðingar sem enginn hefur síðan geta sýnt fram á.   Þá sagði ég að St. Jósefsspítali verður næstur og nú er það að gerast.   Ég segi núna að það er bara tímaspurning hvenær spítalarnir í Reykjanesbæ, Akranesi og Selfossi verða einnig settir undir Landspítalann eða hreinlega lagðir niður.   Sökum góðra samganga við Reykjanesbæ og nálægðar, þá verða þeir sennilega næstir, enda er unnið hörðum höndum að því.   Nú er verið að tvöfalda suðulandsveg og svo verða önnur Hvalfjarðargögn gerð og þá eru framtíð sjúkrahúsanna á Akranesi og Selfossi ráðinn.  Það hefur verið sýnt fram á það að kragasjúkrahúsin eru miklu ódýrari en Landspítalinn, þannig var það einnig með Landakotspítalann, en samt eru þessi sjúkrahús lögð niður í nafni hagræðingar sem reynist svo vera öfugmæli.   Það er ljóst að það sem hrjáir heilbrigðiskerfið er æxli í heilbrigðisráðuneytinu sem er höfuð kerfisins og eins og önnur æxli, þá draga þau til sín allar orku og þegar þau eru í höfðinu þá verður ruglið og einstrengingshátturinn meiri.   Það er illt ef það þarf að afhöfða sjúklinginn til að lækna hann, en það gæti orðið eina leiðin.


mbl.is Spítalar sameinaðir 1. febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðdáendur Wikileaks snúa bökum saman

Ofbeldi stjórnvalda um allan heim dynja núna yfir Wikileaks og það er skylda allra að snúa bökum saman og verja þessa nauðsynlegu upplýsingaveitu.    En það er greinilegt að opinberir aðilar vilja halda áfram með sýna moldvörpustarfsemi, og miðað við hvað þeir leggja mikla áherslu á þetta að það er mikill skýtur þarna undir, sem þeir óttast.    Því þurfa allir að snúa bökum saman og verja Wikileaks, t. d spyrja þá sem hafa lokað á Wikileaks hvers vegna þau eru farin að hlaupa erinda moldvarpanna.  Hér má nefna kortafyrirtækin, amason og fleiri.

Verða frídagar aflagðir

Nú ríða öfgahópar í borgarráði og fjölmiðlum í nafni frelsis.  Nú má ekki kenna nemendum neitt um þjóðtrúna og þar með mega þau ekki vita hvers vegna við höldum frídaga eins og jól, (annan í ) hvítasunnu, páskum, uppstigningadag og hvers vegna einn föstudagur á árinu er lengri en aðrir. Nú hlýtur það að gerast að annað hvort verði þessi frídagar aflagðir og allir mæta bæði til vinnu og skóla eins og aðra daga, eða við höldum okkur heima án þess að vita hvers vegna.

Nei vitleysan ríður ekki við einteyming.


Gylfi hverfur af braut

Þarna fór einn besti ráðherrann en svo sitja eftir menn sem hafa skapað þjóðinni ómetanlegt tjón eins og Svanhvít og Jón.   Þessi ríkisstjórn ætlar að verða alveg ótrúlega lánlaus.  Það eitt væri sök sér ef lánleysið bitnaði ekki á þjóðinni
mbl.is Verð betri kennari fyrir vikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú eru þeir ódýrustu að undirbúa verðhækkun

Það er skrítið að það er ekki liðin nema 2 dagar síðan OR boðaði sínar hækkanir og fóru fram úr verði HS.   Nú er greinilegt að HS ætlar líka að ná sér í meiri pening.   Það er greinilegt að hér ríkir það sem tryggingafélögin og olíufélögin kölluðu BULLANDI Samkeppni.    Sem var kallað fákeppni í minni sveit. og öllum (ríkistjórn, samkeppniseftirlit að ótöldum orkustofnun) er sama.
mbl.is Mikið tap hjá HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þarf Orkustofnun að skoða sína stöðu

Það er nokkuð merkilegt að fyrir almenning, þá hefur það ekki svarað kostnaði að skipta um orkufyrirtæki, því maður er fastur hjá sínu dreififyrirtæki.  Það vill svo undarlega til, að mismunur á gjaldkrám fyrirtækjanna er nokkur örfá % (mest 8%), en þegar kemur að verðmun í dreifingu sem er í einokun orkufyrirtækisins þá er munurinn tugi prósenta, 36% í dag sem er næstum því fimmfaldur munur á orkuverði.  Auk þess er dreifing nærri 60 % af heildarrafmagnskostaði og fer hækkandi.

Verð á orkunni ætti að vera háð verði á virkjuninni og hversu hagkvæm hún er, og hvort búið er að afskrifa hana, en það er nú öðru nær, sumar eru nýjar varmaaflsvirkjanir aðrar eru gamlar vatnsaflsvirkjanir.   Það eina sem er sennilega sameiginlegt öllum orkufyrirtækjunum er gjaldskrá Landsvirkjunar.

Verðgrunnur dreifingar er aftur á móti allt annar, þar höfum við sambærilega launataxta um allt land við lagningu og viðhald dreifikerfisins.   Sama innkaupsverð á strengjum spennum og örðum búnaði hjá íslenskum byrjum.  Er nema von að maður spyrji sig, af hverju er svona mikill munur á dreifingaverði en enginn á söluverði.   Það er vonandi að Orkustofnunin geti útskýrt það hún á að sjá um framkvæmd Raforkulaga og beita stjórnvaldssektum ef svo ber undir.

Fyrir mér lítur þetta út sem fákeppni af bestu gerð, þar sem fyrirtækin hafa smá sýndarmun á orkuverðinu og bæta sér svo upp það sem á vantar með dreifingarverðinu.   Orkustofnunin virðist ekki hafa verið þeim til vandræða, og því fór sem fór að Orkuveita Reykjavíkur ákvað að hafa hækkunina nær eingöngu á dreifingunni.


mbl.is OR verður aldrei ódýrust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Kristinn Sigurjónsson

Höfundur

Kristinn Sigurjónsson
Kristinn Sigurjónsson

Hef mikinn áhuga á stjórnmálum, en held mig á hliðarlínunni og leyfi mér að finna að öllu og öllum.

kristinnsig@netscape.net 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...birna
  • Wernerssonum líklega úthýst
  • ...rlag_730803
  • visitolur_3

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband