Það stendur í Íhaldinu að ræða við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Vitaskuld stendur það í íhaldinu að ræða við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, því hann setur skilyrði.    Þessi skilyrði fjalla meðal annars um að minnka spillingu, en íhaldið sér enga spillingu.  En það sem skiptir meira máli er að það þarf að minnka ríkisútgjöld og þeir gætu farið að finna að eyðslu utanríkisþjónustunnar í öllum þessum sendiráðum.  Þeir gætu líka farið að finna að ofurlífeyrisrétti þingmanna og ráðherra, svo ég tali nú ekki um kostnaðinn af því að útvega afdönkuðum þingmanni eða ráðherra feitt starf, sem kostar margfalt meira en lífeyrinn sem hann fær.   Þeir gætu líka fundið að því að verðmætum þjóðarinnar væru gefnir útvöldum flokksbroddborgurum sem kvóti.   Hér tapar ríkið miklum verðmætum, sem íhaldið sér als ekki sem tapað fé, bara vel varið í höndum manna sem nú græða á tá og fingri vegna lágs gengis og olíuverðs og  styrkja flokksvélina vel.   Ef einhver dugur er í Alþjóða gjaldeyrissjóðnum þá ætti hann að taka á þessu og lækka ríkisútgjöldin enn frekar, með því að fækka þingmönnum um ca. 22 sem sparar sennilega nærri 300 stöðugildi með feitum launum og feitum eftirlaunarétti.
mbl.is Norðmenn afar vinsamlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef meiri áhyggjur af því að sett verði skilyrði um aðgang útlendinga að ýmsum auðlyndum, orku t.d. Einnig að ráðist verði á íbúðalánsjóð, heilbriðgiskerfið og annað sem hefur verið flokkað sem "bruðl" af einkavæðingarsinnum. Mun Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn ekki halda fast við sínar kreddur (einkavæðingar, minni ríkisafskipti og "frjálsan" markað) rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert, þótt ógæfa þjóðarinnar hafi blasað við.

ragnar (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristinn Sigurjónsson

Höfundur

Kristinn Sigurjónsson
Kristinn Sigurjónsson

Hef mikinn áhuga á stjórnmálum, en held mig á hliðarlínunni og leyfi mér að finna að öllu og öllum.

kristinnsig@netscape.net 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...birna
  • Wernerssonum líklega úthýst
  • ...rlag_730803
  • visitolur_3

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 1439

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband