Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
19.2.2010 | 22:41
Hver er máltúlkun Hæstaréttaradómara
í banaslysi sem varð í Viðeyjarsundi þá deyr par í óvígðri sambúð. Hann hafði gengið þannig frá málum að ef hann létist á undan, þá var henni tryggð ákveðin framfærsla með hans líftryggingu. Nú vill svo til að þau deyja bæði í þessu hörmulega slysi. Það er ekki neinum vafa undirorpið að hún notar ekki hans tryggingabætur til að framfleyta sér þar sem hún deyr í SAMA SJÓSLYSINU en samkvæmt fréttinni þar sem vitnað er í dóminn segir
"Því verði talið, að tveir aðskildir atburðir hefðu valdið því að maðurinn og konan létust og konan væri því rétthafi dánarbóta eftir manninn."
Hann dó í sjóslysinu og hún dó vegna sama sjóslys, en hæstiréttur telur þetta tvo óskylda atburði.
Er þetta ekki ein afleiðing þess að dómarar eru handplokkaðir af stjórnmálamönnum, og skyldi það ekki vera fleira sem þarf að skipta út í þessu landi.
Skyldi kannski vinsemd, og ættartengsl sem hafa einkennt þetta samfélag haft einhver áhrif, eða er það bara tilviljun að faðir konunnar er lögmaður.
Mér þykir bara mesta furða að dómstólar þessa lands skuli yfirleitt hafa nokkurt traust meðal þjóðarinnar
Fær ekki dánarbætur vegna slyss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2010 | 12:41
Bullandi samkeppni eða samstæð stjórn á raforkumarkaðnu
Verið var að skipa nýjan stjórnarmann í Samorku og heitir hann Hörður Arnarson. Eftir þetta þá er stjórnin skipuð
Franz Árnason Norðuorka (Formaður)
Hörður Arnarsons Landsvirkjun
Hjörleifur B Kvaran Orkuveita Reykjavíkur
Júlíus Jónsson Hitaveita Suðurnesja
Tryggvi Þór Harðarson Rarík
Þórður Guðmundsson, Landsnet.
Páll Pálsson Skagafjarveitum.
Er nema vona að það sé bullandi samkeppni á raforkumarkaðnum, bæði í sölu og dreifingu, enda allt undir vökulum augum Orkustofnunar
Hörður í stjórn Samorku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2010 | 17:45
Icelandair, kemst upp með fákeppni
Það er alveg greinilegt að það hefur ekkert breyst í þessu þjóðfélagi. Icelandair komst upp með að þvinga Iceland Express í þrot og er nú búið að fá það staðfest af héraðsdómi.
Það var löngum ljóst að samkeppniseftirlitið er handónýtt og fyrir löngu kominn tími til þess að bæði stórauka framlög til þess og sennilega líka að skipta um yfirmenn. Nú þarf það ekki að koma neinum á óvart að það er fullþörf á því að skipta um dómara líka, enda hafa þeir verið handplokkaðir af þeim sömu og sátu og sitja við kjötkatlana og mega ekki til þess hugsa að neinir aðrir komist þar að.
Þess ber að geta að Apótekarinn á Akranesi kærði eitt af stóru lyfjaverslunum til samkeppniseftirlitsins og er hann þegar búinn að færa þeim 2ja ára afmælistertu. Þeir gera sennilega ekkert fyrr en hann er kominn í þrot eins og Icelandexpress forðum
Íhugar að áfrýja dómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.1.2010 | 19:49
Skyldi Valtýr vita að kassakaupum embættis sérstaks saksóknar
Eva Joy krafðist þess að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari viki úr embætti saksóknara, þar sem Sigurður sonur hans hafi verið annar forstjóri Existu. Hann taldi það af og frá að hann væri óhæfur, enda myndi hann ekki koma nærri rannsóknum á bankahruninu. Nú væri gaman að vita hvort hann hafi vitað að embætti sérstaks saksóknara hefði lagerað sig upp af tómum pappakössum og embættið hefði líka fengið heimsókna frá SFO (Serious Fraud Office). Valtýr hefur kannski trúað því að þeir væru til að sýna sérstökum ríkissaksóknara, hvernig svona kassar eru settir saman svo botninn sé öruggur. Skyldi Sigurður sonur hans hafa heyrt í pabba sínum nýlega, og rætt hvað hann hafi verið að sýsla við og hvort margir hafi verið í vinnunni undanfarið. Gæti hafa farið fyrir Sigurði eins og Jóni Ásgeiri forðum daga, að hann hafi ekki verið í neinu tölvupóstsambandi sl. 2 ár, eða skyndilega þurft að kaupa sér nýjar tölvur.
Er einhver hissa á kröfu Evu Joly. Hvar væri rannsóknin ef hennar hefði ekki notið við?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2010 | 09:04
Aðgerðir banka í lausafjárkrísu
Enn og aftur eru að koma fram fréttir um það þegar peningum er mokað í vini og vandamenn bankamanna eins og þegar Glitnir eys peningum í Fons. Menn mega ekki gleyma því að þegar bankarnir hrundu, þá voru þeir búnir að vera í lausafjárkrísu í yfir 2 ár. Þá hefði maður haldið að þeir hættu að lána út peninga, en nýttu hvern aur sem inn kæmi til að leysa sína lausafjármál. Í staðin moka þeir peningum út meir en nokkru sinni fyrr og megnið ef ekki allt með hæpnum veðum svo ekki sé meira sagt og nánast til örfárra útvaldra vina. Þarna eru menn hreint og beint að stela peningum og allir sem með beinum eða óbeinum hætti komu að þessu, á að refsa samkvæmt broti þeirra.
Það var ljóst í yfir 2 ár, að hvorki bankinn ætti fyrir þessu né að lántakendur gæti staðið í skilum. Er þetta ekki það sem kallast einbeittur brotavilji. Það verður sennilega dapurlegt að heyra dómsorðið þegar það verður kveðið upp, þetta verður sennilega tekið sem óheppni, eða í versta falli sem glámskyggni.
Glitnir mokaði fé í Fons | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2010 | 13:57
Forsetinn gerði það sem honum bar að gera samkvæmt stjórnarskránni
ESB metur Icesave-málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2009 | 17:54
Þarf ekki að fá aðra í ölgerð Egils
Uppsagnir vegna skattahækkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2009 | 19:07
Aftur er dygðin orðin að glæp
5.11.2009 | 21:03
Netlögga föst í 1984
Nú gengur tíminn til baka og við nálgums 1984 þar sem stóri bróðir fylgist með öllu.
Þetta er atvinnuskapandi.
Bretar fara að dæmi Frakka gegn sjóræningjastarfsemi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2009 | 11:28
Ef það er smuga, þá er leið
Segja gagnrýni á ný lög fjarstæðukennda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Kristinn Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar