Sproti á leið til Kanada

Mér var sagt frá litlu sprotafyrirtæki sem er staðsett á Höfn við Hornafjörð, að það væri búið að gefast upp á annars vegar rekstraraðstæðum og fyrirgreiðsluleysi hérlendis  og væru að fara með fyrirtækið til Kanada.  Fyrirtækið heitir Northtasaste (http://www.northtaste.com/index.htm) og framleiðir bragðefni úr sjáfarafurðum til að setja í matvæli.  Sjálfur hef ég bragðað þetta og er það meiriháttar, og ekki gert eins og önnur sjávarkrydd úr fiskimjöli.  Þetta er afrakstur rannsókna í líftækni sem var mikið talað um fyrir rúmum áratug.   Nú er árangurinn að koma í ljós og þá neyðist fyrirtækið til að flytja meginhluta starfseminnar til Kanada.   Kanadamenn eru ekki bara fegnir að fá fyrirtækið, heldur skilja þeir ekkert í því að íslendingar skuli sleppa því úr landinu.

Svona fer fyrir þeim sem hafa ekki pólitísk ítök, heldur verða að berjast á eigin spýtum fyrir sinni tilveru.  Nei það er enginn spámaður í eigin föðurlandi.


mbl.is Áform um ný störf í sprotafyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækningin er alltaf erfið, líka lækningin við skuldasýki

Vandi þjóðarinnar er að meginhluta vegna þess að hún sökkti sér í skuldir, bæði einstaklingar, fyrirtæki og bankar.   Nú erum við að súpa seyðið af því.   Hvað er betra til að draga úr skuldsetningu og auka sparnað en að hækka leigu fyrir peninga.   Þannig gerist það á öðrum víðstöðvum.    Það hljómar því undarlega að þegar það ætti að vera keppikefli allra að losna úr skuldum og hvetja til sparnaðar,  þá er á  borði verið að hvetja til skuldsetningar með lágum vöxtum.    Nú gráta allir að raunvextir eru orðnir 1,8% og þegar búið er að draga fjármagnsskatt frá (hjá þeim sem spara) þá eru raunvextirnir orðnir 0,25%   Það gráta allir yfir þessu og krefjast þess að spariféð verði brennt upp, krónan haldist lág svo að þeir sem vildu spara, bæði tapa sparifénu og þurfa að borga meira út í búð.   Þeir sem vilja hvetja til sparnaðar og láta skuldarana eina  gjalda og reyna að styrkja krónuna sem mun leiða til lægra vöruverðs öllum til hagsbóta, líka skuldurum, eru nú fordæmdir sem landráðamenn.   Er von að landinn er kominn fram á vonarvöl.   Þeir sem ekki vilja lækningu þegar hún er erfið eru eins og holdsveikir og þá þarf að einangra þótt háværir séu.   Það var lán í óláni að ríkissjóður var skuldlaus og nú er krafan að drekkja honum líka í skuldafeninu.   Er von að illa sé komið fyrir þjóðinni

mbl.is Mótmæla vaxtahækkun Seðlabankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnir ríkisins eru handan við hornið

Eftir þær hörmungar sem þjóðin hefur orðið fyrir, þá byggist lausnin á því að ríkissjóður annars vegar auki tekjur sínar og minnki útgjöld sín.    Vandinn er að enginn vill hærri skatta, enda margir komnir undir fjalaköttinn og hafa enga útleið.   Því gæti lausnin falist í.

Til að minnka útgjöldin

  1. Fækka erlendum sendiráðum (tekur strax gildi)
  2. Afnema lífeyrisforréttindi þingmanna (gæfi gott fordæmi, og færi strax að virka)
  3. Fækka þingmönnum (umtalsverður sparnaður bæði í launum þingmanna og þjónustustofnunum þess, sem og fasteignum.   Tekur ekki gildi fyrr en eftir tvennar kosningar)
Til að auka tekjurnar má
  1. Innkalla kvótann og leigja út (tekur mörg ár, en gæfi stigvaxandi tekjur)
  2. Leigja orkufyrirtækjunum orkuauðlindirnar (gefur litlar tekjur í upphafi, en til lengri tíma getur þetta orðið ríkinu umtalsverðar tekjur)
  3. Brjóta upp Landsvirkjun og selja hluta þess (gefur strax mikla peninga og myndi efla samkeppni á orkumarkaðinum)
Auðlindir þjóðarinnar (liður 1 og 2) eiga sér ekki upphaf á takmörkuðu svæði sem hægt er að merkja ákveðnum aðila, hvorki hafið umhverfis landið,  regnvatnið á hálendinu, né bergið undir landinu, þótt yfirborðið sé á höndum einkaaðila, þá er orkan komin frá regnvatninu og sprungusvæði sem liggur þvert og endilagt um landið.   Því má líta á þessar auðlindir sem sameign þjóðarinnar sem nýtendur leigja af þjóðinni eins og olían umhverfis Noreg.   Leigan mun einnig auðvelda nýjum aðilum að komast inn á markaðinn og þannig auka samkeppnina og þannig gera nýtnina betri.
En það er borin von að Sjálfstæðisflokkurinn geti hugsað sér að gera nokkuð af þessu. 

Gott silfur Egils er gulli betra

Þátturinn Silfur Egils í dag (26.okt.2008)  var hreint frábær.   Var gaman að heyra gáfufólkið rökræða ástandið og í fyrsta hlutanum þótt mér Gylfi formann ASÍ og Edda Rós tala af mikilli rósemi og án sleggjudóma

Næst koma Guðmundur Magnússon og var kynnt þar nýútkomna bók (Nýja Íslanda, listin að tína sjálfum sér)  sem hann skrifaði og var hans þáttur mjög góður.

Rúsínan í pylsuendanum varviðtal við Jóhannes Björn sem heldur úti vefsíðunni vald.org   Þar sem hann varar við þróuninni.

Ég held að mér sé óhætt að segja að þetta hafi verið einn besta silfur Egils og hvet alla að sjá þegar það verður endurtekið í kvöld.  Raunar ætti að vera skylduáhorf á þáttinn.


mbl.is Óheppilegt að þingmenn stýri sjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lægstu stýrivextir í heimi ?

Nú er verðbólgan að nálgast 20% og þá greip seðlabankinn, vegna þrýstings frá vel flestum í landinu, til þess ráðs að lækka stýrivexti í 12%.    Enginn talar um það að þetta eru með lægstu vöxtum í heiminum miðað við verðbólgu.  Nú er verið að brenna upp sparifé og lausafé.   Er von að illa sé komið fyrir þjóðinni, þegar svona stefna er viðhöfð.   Ætli ég og aðrir sem tilheyra pupilnum geti fengið fé á þessum vöxtum.
Það er auðveld leið úr þessu og hún er að leyfa verðtryggingu á öllum lánsviðskiptum sem eru yfir lengri tíma en mánuður.   Þá þarf ekki svona háa nafnvexti, og ef menn vilja ekki verðtryggingu, þá velja menn bara nafnvexti.   Þannig væri hægt að verja sparifé sem er samfélaginu nauðsynlegra nú en nokkrum sinnum fyrr.

Það á að vera algjört frelsi um það hvort menn vilja verðtryggingu eða ekki, en ekki miðstýring að ofan eins og Jón Magnússon berst fyrir.  Var hann og er hann ekki í Frjálslindaflokknum.


mbl.is Spá yfir 20% verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ætti að brjóta Lansvirkjun upp og selja

Nú er lag til að skipta Landsvirkjun upp í nokkur fyrirtæki og selja flest þeirra á almennum markaði til einkaaðila.   Það þarf bara að tryggja að eignadreifing sé góð og koma í veg fyrir fákeppni eins og þegar er orðin á orkufyrirtækjunum.  Samræming á rafmagnsverði er besta dæmið um fákeppnina ríkir á markaðnum, þótt það eigi að heita að 7 fyrirtæki séu á markaðinum,   nú er mesti munur á rafmagnsverði  6%, þar sem samkeppni er, en það er margfalt meiri munur á dreifingunni þar sem engin samkeppni er.

Fela ætti Friðriki það hlutverk að vinna að þessu, og svo gæti hann horfið af vettvanginum. 

Ríkissjóður gæti einnig fengið umtalsverða aura til að þrífa upp eftir sig og útrásarguttanna. 


mbl.is Ráðningarsamingur við Friðrik framlengdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófur tapar þýfi

Sveitastjórnir kvarta vegna skilagjalda á lóðum.
Sveitarstjórnir höfuðborgarinnar ákváðu að stórhækka lóðaverð, langt langt umfram gatnagerðagjöld.  Þetta var og er ekkert annað en skattlagning sem á sér enga lagastoð, og ég kalla það þjófnað.   Lóðaverðið fór í það að verða 4-falt gatnagerðagjöldin.   Ef sveitastjórnirnar þurfa ekki að skila 1/4 af lóðunum, þá halda þeir eftir útlögðum kostnaði vegna gerð hverfanna.   En þær væla eins og stunginn grís fyrir að þurfa að skila því sem þeir með „ólögmætum“ hætti höfðu af saklausum byggjendum sem flönuðu út í vitleysuna vegna gylliboða bankanna.

Fyrir mér er þetta eins og að hafa samúð með þjófi sem þarf að skila hluta þýfisins. 


mbl.is Milljarða bakreikningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það stendur í Íhaldinu að ræða við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Vitaskuld stendur það í íhaldinu að ræða við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, því hann setur skilyrði.    Þessi skilyrði fjalla meðal annars um að minnka spillingu, en íhaldið sér enga spillingu.  En það sem skiptir meira máli er að það þarf að minnka ríkisútgjöld og þeir gætu farið að finna að eyðslu utanríkisþjónustunnar í öllum þessum sendiráðum.  Þeir gætu líka farið að finna að ofurlífeyrisrétti þingmanna og ráðherra, svo ég tali nú ekki um kostnaðinn af því að útvega afdönkuðum þingmanni eða ráðherra feitt starf, sem kostar margfalt meira en lífeyrinn sem hann fær.   Þeir gætu líka fundið að því að verðmætum þjóðarinnar væru gefnir útvöldum flokksbroddborgurum sem kvóti.   Hér tapar ríkið miklum verðmætum, sem íhaldið sér als ekki sem tapað fé, bara vel varið í höndum manna sem nú græða á tá og fingri vegna lágs gengis og olíuverðs og  styrkja flokksvélina vel.   Ef einhver dugur er í Alþjóða gjaldeyrissjóðnum þá ætti hann að taka á þessu og lækka ríkisútgjöldin enn frekar, með því að fækka þingmönnum um ca. 22 sem sparar sennilega nærri 300 stöðugildi með feitum launum og feitum eftirlaunarétti.
mbl.is Norðmenn afar vinsamlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona hverfur lausaféið

Spron hefur strax brugðist við lækkun stýrivaxta og lækkað vexti,   Innlánsvextir standa ekki lengur undir verðbólgu,  og þá hverfur það.    Skildi dýralæknirinn vita hvernig við losum okkur við það litla lausafé sem er til í landinu.   Er eitthvað óeðlilegt við það að fólk geymi peningana undir koddanum, þegar þeir brenna líka upp í bönkunum.
mbl.is SPRON lækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenna krafan um þjófnað og eignarupptöku

Háir nafnvextir í mikilli verðbólgu, er ekkert annað en leið til að viðhalda verðgildi krónunnar.  Verðbólgan er ekki  gengin niður og því eru allir, samtök atvinnulífsins, ASÍ og nú síðast Neytendasamtökin að krefjast þess að sparifé þeirra sem það eiga, verði gerð að hluta upptæk fyrir fyrirtæki og skuldara.   Þær hremmingar sem nú ganga yfir munu að vonum endurtaka sig, því eftir nokkur  ár verða allir búnir að gleyma þessu alveg eins og forysta allra samtaka og félaga eru búnir að gleyma því hvernig ástandið var þegar sparifé brann upp.    þegar ég var ungur, þá var hvatt til ráðdeildar og sparnaðar.   Þær hvatningar hljóma sem soglegt gamanmál í dag.

Einn möguleikinn er að stytta binditíma verðtrygginga úr 3 árum  í 3 mánuði.   Því það er alveg öruggt að ef menn vilja að sparifé muni brenna upp, þá mun það líka hverfa.   Datt einhverjum annað í hug.
Nú þekki ég ekki til hvort Seðlabankinn geti verið með verðtryggingu á  stýrivöxtum, sennilega ekki og því reikna ég með að hann muni lækka Nafn-stýrivexti um leið og verðbólga fari niður.

Ég bara frábið mér því að hlusta alla krefjast eignarupptöku á sparifé almennings. 


mbl.is Neytendasamtökin krefjast stýrivaxtalækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er illt fyrir Jón Ásgeir að þurfa að kenna á eigin meðulum

Jón Ásgeir finnst að hluthafar Glitnis hafi verið stillt upp við vegg og þeir hlunnfarnir af ríkinu.   Það vekur mér undrun að hann skuli ekki vera sáttur við að ríkið beiti sömu meðulum á hann og sagt er að hann hafi beitt birgja landsins.   Ætli þeim hafi aldrei verið stillt upp við vegg.

Þorsteinn Már og Glitnir

Þorsteinn Már vildi að hluthafar Glitnis ykju sjálfir hlutafé sitt.  Hann getur trútt um talað, því hann er aðaleigandi eins stærsta útflutningsfyrirtækis landsins, Samherja.   Með núverandi krónukúrs, þá malar hann gull og mun sennilega styrja hlut sinn í Glitni þegar það fer nú á brunaútsölu.

Davið, Glitnir, Jón Ásgeir, handaflið og bankastjóralaunin

Davíð er alltaf snjall.   Á sínum tíma tók hann út sparifé sitt í Kaupþingsbanka, og ef hann hefur sett það inn á Íslandsbanka (nú Glitni) þá er hann búinn að tryggja sitt sparifé.   Hann er grunaður að hafa lengi haft horn í síðu Jóns Ásgeirs.   Ekki tókst að fella hann á hné með réttarkerfinu. en nú hefur honum tekist að ná af honum margfalt meiri peningum sem hlutafé í Glitni, en honum hefur dreymt um að ná af honum í sektarfé.  Kannski hefur handaflinu tekist það sem réttarkerfinu tókst ekki, svo tala menn illa um þá sem láta hendur bókstaflega bókstaflega standa fram úr ermum.
Á blaðamannafundi  seðlabankans var Davíð spurður um launakjör stjórnenda bankanna.   Sjálfur fékk hann rífleg kauphækkun vegna launa bankastjóranna.   Skildi seðlabankinn vera á sömu brauðfótunum og hinir bankarnir, skildi seðlabankinn lækka í launum eins og bankastjóri Glitnis, skildi Davíð ganga fram með góður fordæmi og lækka launin sín, eða skildi Davíð bara yfirleitt hafa hugleitt þetta.
mbl.is Óttast keðjuverkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjarðhegðun greiningadeilda bankanna

Það er undarlegt að bankarnir eru með hóp manna sem eiga að vera hámenntaðir og eru mjög sennilega mjög vel launaðir, en þeir hegða sér ekki eins og fagmenn, heldur eins og hjörð sem fylgir fjöldanum, þótt hann sé að hlaupa fyrir björg.   Það var lítið talað um innra virði fyrirtækja og fjárfestingabanka, eins og það að þeir ættu hver í öðrum og verðgildi þeirra var spanað upp með viðskiptum sem líktust meira á Matador leik en viðskiptum með raunverulega verðmæti, samanber úttekt á FL Group á You Tube.   Það er fjarri því að þetta sé sér einkenni íslenskra greiningadeilda, því verðmat útlendinga á íslensku krónunni bendir einnig til hjarðhegðunar, en ekki að hér séu fagmenn sem meti undirstöður atvinnuveganna, að þeir eru til þess að gera óháðir sveiflukenndum neyslumarkaði eins og bíla-, sjónvarps- eða annarri lúxusframleiðslu eins og víðast erlendis, heldur á áli, fiski sem vaxandi eftirspurn er eftir.   Þegar ameríska fjármálakerfið hrynur eins og spilaborg, þá fellur íslenska krónan en ekki dollarinn.   Nú var sænska fjármálaeftirlitið að athuga athafnir vogunarsjóða, sem einmitt spila á hjarðhegðun og vita að það er lítið vit í faglegri umræðu þessara sérfræðinga og þeir planta orðspori og þá er hjörðin hlaupin af stað.   Það sem vekur mesta undrun mína er að fréttastofur eru enn að tala við greiningadeildir, frekar en spákonur og þær vísu konur sem lesa í garnir nú á þessari sláturtíð.   Það kæmi meira vit úr þeim, því þær hafa séð að nú er orðinn nokkur erlend eftirspurn eftir innmatnum svo sennilega eru góðar garnir orðnar gulls ígildi.
mbl.is Markaðsmisnotkun rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf ekki að fylla skarð Björns

Það þarf sem betur fer ekki að fylla skarð Björns Bjarnasonar um næstu kosningar, hvort sem hann verður í framboði eða ekki.  Það er kominn tími til að skipta út því liðið sem hefur nánast alist upp innan ráðuneytanna og farin að líta á þau sem sitt einkaheimili sem þeir geti ráðskast með að vild
mbl.is Björn segir að fylla þurfi skörðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra ánægður með samkrull viðskipa- og fjárfestingabanka

Í sjónvarpsfréttunum mánudagskvöldið 22.09.08 lýsti forsætisráðherra því hvað það var gott að ekki væri búið að skylda aðgreiningu viðskipta- og fjárfestingabanka.    Mikið er nú gott að þrátt fyrir stórfeld töp bankanna af fjárfestingafylleríi sínu, fái þeir nú góða afréttingu með því að styrkja tekjugrunn sinn i viðskiptageiranum.    Þar er bullandi fákeppni, allir með nánast sömu gjöld og vexti.  Það er ekki einu sinni hægt að hringja og spyrja hvað maður á, né sækja eina af sínum krónum í greipar þeirra, án þess að borga fyrir að sækja sitt eigið fé.   Það er mikið lán að þurfa ekki að deila hagnaði sínum með lægri þjónustugjöldum þegar vel gengu, bara deila tapinu þegar illa gengur.   Mikið getur Geir og vinir hans í hlutafélagfélaginu verð glaðir.   Þrátt fyrir stórfeld fjárfestingatöp hafa þeir góðan hagnað í þessu hörmungaástandi,  þeim finnst það meira að seigja ósvinna að innlánvextir standi undir verðrýrnun krónunnar.

Lögreglustjóraembætti Suðurnesja og þjóðhagstofnun

Völd spilla og mikil völd spilla mikið, þetta á ekki síst við um stjórnmálamenn, Björn Bjarnason ætlar að feta í fótspor Davíðs og sennilega föður síns einnig, en ég man ekki vel svo langt aftur, en vitað er að Björn hefur reynt að koma í veg fyrir að hlerunarmál hans verði afhjúpuð.   Nú ætlar hann að losa sig við lögreglustjórann á Suðurnesjum, Jóhann R Benediktsson.   Það eina sem ég furða mig á, er hvers vegna hann fetar ekki algjörlega í fótspor Davíðs, þegar hann lagði niður Þjóðhagstofnun, því honum mislíkaði framkvæmdastjórinn, og skoðunar hans á málefnum þjóðarinnar.   Því spyr ég, af hverju leggur Björn bara ekki niður Lögreglustjóra embættið.
mbl.is Skipt um lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi andlit lausafjárkreppunnar

Það er mismunandi myndir sem lausafjárkreppan tekur á sig,   Þegar lausafjárkreppa er þá vanta lánastofnanir fé til að lána til gagnlegra verka.   Eitt besta ráðið til að auka lausafé er að hækka vexti, það dregur úr útlánum (eftirspurn eftir lánsfé) og hvetur til sparnaðar (eykur framboð á lausafé). Það er því nokkuð undarlegt þegar banki auglýsir lægri vexti, eins og hann hafi nóg lausafé.   Hvernig væri að lántakendur töluðu við hann


Nú er lag að skipta Landsvirkjun upp

Nú þegar verið er að skipta um húfu á Landsvirkjun, þá er lag til að skipta Landsvirkjun upp í 2 -3 minni fyrirtæki og selja hluta þeirra.

Landsvirkjun er allt of stórt fyrirtæki og orðið að ríki í ríkinu og stjórnar allri umræðu um orkumál landsins.   Svo hafa þeir algjöra einokun á heildsölumarkaði rafmagns.    Verð á rafmagni til hins almenna notanda ber merki þess að verðákvörðunin sé tekin á sameiginlegum fundi forstjóra orkufyrirtækjanna í Öskjuhlíðinni.   Þar passa menn sig mjög að troða engum um tær og styggja engan.    Þegar þeir eru spurðir um þessa sameiginlegu verðákvörðun,  þá bera þeir því við, að það sé bara einn heildsöluaðili á rafmagni og þar lúta allir sama verði, þar hafa þeir nokkuð til síns máls.   M.ö.o. það er engin samkeppni á rafmagni.

Það er sennilega engin von til þess að sjálfstæðisflokkurinn munu gera neitt til að efla samkeppni á raforkumarkaðnum, það er ekki þeirra siður.    Auk þess er einhver í Valhöll skólaus, og nú er bara að koma honum í skóna sem búið er að sníða.


Skónúmer forstjóra Landsvirkunar

Nú er búið að auglýsa starf forstjóra Landsvirkjunar, samkvæmt auglýsingu

Gerðar eru kröfur til umsækjenda um háskólamenntun, sem nýtist í starfi, stjórnunar- og rekstarreynslu, yfirgripsmikillar þekkingar og reynslu á sviði fjármála, framúrskarandi samskiptahæfni og góðrar tungumálakunnáttu. Þá er þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.

Það er greinilegt að búið er að ákveða skónúmer umsækjanda og nú er bara að fara í skógeymslu Valhallar og finna hver er með rétta skóstærð sem hefur framúrskarandi samskiptahæfni í salnum (leturbreyting mín)

Það er augljóst að hann þarf ekkert að vita um orku, hvað þá rafmagn, hann gæti  sem best verið dýralæknir eða eittvað svoleiðis. 


mbl.is Starf forstjóra Landsvirkjunar auglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristinn Sigurjónsson

Höfundur

Kristinn Sigurjónsson
Kristinn Sigurjónsson

Hef mikinn áhuga á stjórnmálum, en held mig á hliðarlínunni og leyfi mér að finna að öllu og öllum.

kristinnsig@netscape.net 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...birna
  • Wernerssonum líklega úthýst
  • ...rlag_730803
  • visitolur_3

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 1438

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband